miðvikudagur, júlí 19, 2006
laugardagur, júní 17, 2006
Andátsfregnir
forystugeitin.blogspot.com hefur hér með verið lögð niður....
- Þakka samveruna á liðnum árum.
Ný starfsemi forystugeitarinnar er á vefsvæði bloggar.is undir notendanafninu astamaria
astamaria.bloggar.is
föstudagur, júní 16, 2006
Pakkastelpa
Fékk gjöf í dag. Magnús Orri aðeins að taka forskot á edrúafmælisdaginn og gaf mér nýjan Ericsson síma. Ég er þræl ánægð með hann, símann og karlinn minn:)
Erum annars orðin spennt fyrir afhendingunni á Súlutjörn 19 (samt ekki fyrr en í september). Kvörtum svosem ekkert yfir foreldrum okkar (enda dekrað við okkur á báðum stöðum), en það verður þægilegt að komast í eigið húsnæði. Ætti kannski að skreppa með strákinn vestur til pabba og kynna þá áður en við byrjum að búa saman. Pabbi þarf eiginlega að samþykkja strákinn fyrst (hef nú samt ekkert mikið farið eftir því sem foreldrar mínir segja, en samt;) Hvað segiru annars um það pabbi?
Helgin verður blaut miðað við veðurspár og fyrri daga. Ætlum upp á Skaga í kvöld og hafa það notó með Lív Ásu og krökkunum. Ekkert planað fyrir morgundaginn og svo verðum við bæði að vinna á sunnudeginum (edrúafmælisdeginum). En núna er ég farin að leggjast á bæn og panta gott veður fyrir ykkur!
fimmtudagur, júní 15, 2006
Góður draumur mar...
Mig dreymdi svo vel í nótt að ég ætlaði bara ekkert að koma til baka. Var úti á Spáni í sólinni og var orðin svo fallega brún og veðrið var svo yndislegt. Svo rumska ég og heyri í vindinum gnauða úti og ég klemmi aftur og augun og næ að koma mér suður til Spánar í smá stund í viðbót. Hvítur sandur og gullin sólin léku við mig og ég næ að verða meira brún og njóta þess að liggja með svalandi drykk á ströndinni aðeins lengur. En þá kippir mér e-ð til baka (held að það hafi verið blessað hunds greyið) og ég glaðvakna. Engin sól, ég alveg jafn hvít og þegar ég fór að sofa í nótt og Magnús Orri hrjótandi við hliðina á mér.
Gott að láta sig dreyma
miðvikudagur, júní 14, 2006
Veður smeður
Hvenær kemur sumarið??? Vaknaði við að það var drasl fjúkandi út um allt hérna bakvið á Kristnibrautinni. Nenni ekki að hafa svona sumar.
Fæ þriggja daga frí frá og með morgundeginum og það er ekki einu sinni mín helgarfríhelgi. Frí á lau vegna 17. júní, vaktafrí á föstudag og svo bað Sigga mig um að skipta við sig þannig að ég fæ frí á fimmtudeginum vegna skiptanna. Næsnæsnæs. Veit ekkert hvað ég á að gera af mér í öllu þessu fríi;)
Hvert á að fara um verslunarmannahelgina og fyrstu helgina í júlí?
mánudagur, júní 12, 2006
Manns eigið
Mér finnst alveg stórmerkilegt hvað rúmið mitt er hrikalega þægilegt þegar ég er búin að vera frá því í e-n tíma. Blóta því þess á milli. Fermingarúmið hefur þó staðið sína plikt í gegnum árin og ég var þræl ánægð með það alveg þangað til að Maggi kom til sögunnar. Ekki beint rúm fyrir tvo.
Annars rættist útileguveðurspáin EKKI. Við fengum ský og rigningu og svo langaði fortjaldinu á hjólhýsinu ekki með okkur í ferðalagið þannig að þetta varð aðeins minna kósý en ég var búin að vona. Ferðinni var heitið á þriggja stjörnu tjaldstæðið á Bakkaflöt í Skagafirði. Frábær aðstaða og við mælum með henni sem og sundlauginni sem er þarna alveg rétt hjá. Eini gallinn var að í kvennaklefanum er langur gluggi hátt upp við loftið beint við sturturnar. Bak við gluggann situr svo sundlaugavörðurinn (strákur) og við biðum allan tíman eftir því að sjá andlit í glugganum. Á laugardeginum kíktum í heimsókn á Hóla aftur og fengum að sjá vatnalífssýninguna sem Marinó og Ragna vinna á. Sá e-n stórskrýtin afrískan lungnafisk sem ég get því miður ekki sýnt ykkur mynd af því myndavélin gleymdist í vagninum. Svo kíktum við með Þóru og Erni Leó á Siglufjörð að heimsækja pabba hennar Þóru. Það varð mikið ævintýri úr því og þau hjón buðu upp á þræl gott kaffi og pöntuðu pizzu á liðið (strákarnir sáttir með það). Vöknuðum á hádegi á sunnudag við leiðindar úrkomu og fórum eiginlega beint í það að ganga frá öllu RENN blauta dótinu. Komum heim rétt fyrir kvöldmat og grilluðum svo matinn sem við ætluðum að grilla um helgina en gafst aldrei tími til að grilla.
föstudagur, júní 09, 2006
Það kemur ekki betri tíð!

Þvílíkur lúxus allir þessir frídagar undanfarið. Helgarfrí hverja helgi síðan ég veit ekki hvenær. Ætla líka að njóta þess að fara í útilegur hverja helgi og jafnvel skella mér vestur fyrir haustið. Erum að leggja í hann seinnipartinn með Þóru og tríó af strákum. Förinni er heitið í Skagafjörðinn í útilegu með tjaldvagn og tjöld. Grill, fótbolti, yatsi og sund.
Er komin með slatta af myndum síðan í vor, hendi þeim inn við tækifæri.
Geðveikt væri ég til í rafting, eru þið með e-ð í sumar??
þriðjudagur, júní 06, 2006
Það var og...
06.06.06. Afmælisdagur litla brósa er runninn upp. 21 árs kappinn! Til hamingju með daginn segjum við.
Aðrir sem eiga afmæli í dag eru:
Ásbjörn Morthens
Skúli pabbi Maríönnu
Brynjar Ævar
Ég er annars komin heim eftir góða helgi með mínum ástkæra. Fórum norður og hittum Helgu, Hauk, Ragnhildi Guðrúni og Marinó. Spiluðum Jungle Speed og grilluðum. Næstu helgi förum við svo í útilegu með Jón Ágúst og Einar Örn. Hrikalega er ég orðin fjölskylduvæn:)
föstudagur, júní 02, 2006
Að flýja veruleikann...
ekki er til neins!
Það verður magnað að komast úr borginni í tveggja daga frí. Magnús Orri stakk upp á ferðalagi norður á Sauðárkrók og þar sem ég er í fríi sunnudag og mánudag var ég meira en til. Rómantísk helgi hjá okkur á hóteli og svo ætlum við að kíkja á Rögnu og Marinó, snattast á Akureyri og ég ætla að kíkja í heimsókn til Viktoríu!
miðvikudagur, maí 31, 2006
Ferðalög helgi eftir hegli
Er að fara norður. Loksins komið að því Viktoría! Keyrum eftir vinnu á laugardag og verðum fram á mánudag.
mánudagur, maí 29, 2006
Engin fyrirsögn
Það er svo yndislegt að vera komin heim að mér er skapi næst að fara til útlanda einu sinni í viku til þess eins að upplifa þessa tilfinningu oftar. En eitt er víst, fer aldrei aftur til útlanda án fjölskyldumeðlims eða vini/vinkonu. Það er bara ekki eins að upplifa góða hluti þegar maður hefur ekki ástvini hjá sér. Skil Hauk og Ævar ómögulega. Ferðast einir um allar trissur í heiminum. Sem minnir mig á að spyrja fólk hvort að það hafi heyrt af Ævari. Týndur?
Fer að vinna aftur á þriðjudaginn. Jæks. Afhverju tók ég ekki lengra sumarfrí? Muna næsta sumar að sumarfrí eru af hinu góða, ekki ávísun á að leiðast!
Maggi kemur heim á morgun. Erum mjög ánægð með það. Komið nóg af útlöndum í bili.
laugardagur, maí 27, 2006
Svífum í draumi vængjalaus...
Loksins komin heim. Kosningadagur, heimkomu dagur minn, afmælisdagurinn hennar Viktoríu og fæðingardagur frumburðar Lísu bekkjarsystur. Margt skemmtilegt við þennan dag.
Þurfti að borga 30 dollara í yfirvigt. Bömmer.
Sá Nicole Kidman í gær. Merkilegt? Já! Það var mjög spes lífsreynsla að sjá svona fræga manneskju;) Horfði í augun á henni og hún labbaði 1 cm framhjá mér! Hún gisti á hótelinu sem ég var á. Bjargaði mission ferðarinnar. Missionið var að sjá einhvern frægan og ég sá hana 5 mín áður en við logguðum okkur út af hótelinu!
Jæja mín kæra Viktoría, til hamingju með daginn og Lísa til hamingju með frumburðinn. Eigið góðan dag og njótið þess að vera mömmur!
fimmtudagur, maí 25, 2006
Ég held ég gangi heim

Þarna sést Brooklyn
Ég er engin heimsborgari. Ég þrái íslenskt vatn til að tannbursta mig með og íslenskt loft til að anda að mér! En ég á samt eftir að fara einu sinni enn á Times Square og 34th street að versla og þá get ég komið heim. Fann líka Diesel búð hérna rétt hjá sem ég ætla að rölta í á morgun.
Dagurinn í dag var ekkert frábrugðin öðrum dögum. Verslanirnar voru heimsóttar. Kíktum á Times Square í Virgin megastore, Element og Billabong. Auðvitað var farið í dótabúðir í leiðinni og svo stefnan sett á Century 21 sem að ég varð fyrir miklum vonbrigðum með. Fann EKKERT þar.. er enginn gramsari. En var mjög ánægð þegar við kíktum á South Street Seaport og ég fann búð sem heitir Expert. Flott föt og verslaði mér föt sem ég notaði í kvöld. Fórum út að borða til að fagna því að Brynja, systir hennar Hildar varð útskrifast úr e-u námi hérna. Fórum á geðveikan stað sem heitir Ventos sem er veitingastaður á milli Chealse og Greenwich village. Við snúllurnar erum samt komin heim upp á hótel og þær eru sofnaðar.
En Sigurða til hamingju með daginn þótt seint sé:) 22 ára skvísa! Systir Hildar fæddi svo strák í dag og því var tvöfalt gleðiefni í kvöld.
miðvikudagur, maí 24, 2006
Day six in the city

Skemmtigarðurinn í Central Park...
Fórum í Soho í dag. Fórum í brunch á stað sem heitir Balthazar. Þangað fer celebið að borða. Sá samt engan frægan því miður. Keypti mér e-ð smotterí og svo hef ég bara verið að hafa það notalegt upp á hóteli. Nóg af sjónvarpsrásum til að horfa á.
Er ekki alveg að nenna að gera neitt túristalegt. Langar alveg að sjá Empire state building en nenni ómögulega að bíða í röðinni. Margir að mæla með einhverju Sex in the city túr en ég hef aldrei verið neitt fan svo ég ætla ekkert að byrja á neinu núna. Á morgun ætla ég bara að kíkja aðeins í mini mollið hérna rétt hjá og kaupa mér e-ð í Esprit og reyna að kíkja á fimmta í Billabong og mtv store. Century 21 er líka möst sem verður að gerast áður en ég fer heim. Nenni samt ekki ein þangað!
Ekkert að frétta af heiman? Hlakka til að koma heim. Kem með góða veðrið með mér, tók það víst með mér til New York þannig að ég verð víst að skila því aftur!
mánudagur, maí 22, 2006
Sumarið er tíminn

Ég á Times Square
Nótt 4 af 8 lokið. Á enn eftir að skoða Empire state building, Century 21, Chinatown og Soho. Nægur tími til stefnu. Flug kl. korter yfir átta á föstudagskvöldið og lendi um hálf sjö á laugardagsmorguninn! Á ennþá nægan pening svo að ég verð ekki alveg fátæk þegar ég kem heim!
En það er svo sannarlega komið sumar hér í New York borg. Allt grænt og sólin hátt á lofti. Ég sit hérna upp í stofu og nýt útsýnisins. Er með svo hræðilegt kvef að ég er að farast. Búi að taka inn e-ð kveflyf sem að school teacher fann upp. Hún var víst orðin svo hrikalega þreytt á að vera alltaf kvefuð og börnin sömuleiðis þannig að hún skellti sér út á rannsóknarstofu og bjó til kveflyf sem er orðið eitt það vinsælasta í Bandaríkjunum. Hún er örugglega ekkert að kenna lengur... nýtur örugglega bara ágóðans á sólríkri strönd á Bahamas.
Vildi að þið gætuð séð matvöruverslunina sem er hérna rétt hjá, Whole foods. Hún er GEÐVEIK. Hagkaup kemst ekki 1/100 nálægt þeirri búð í gæðum og flott heitum. Þið ættuð að sjá grænmetið, ávextina, fiskinn, kjötið, ostana.. bara allt. Helst vildi ég versla inn þarna áður en að ég kem heim en það er víst ekkert vinsælt!
Förum út að borða á einhverju næs steikhúsi í kvöld. Hlakka til að fá gott kjöt. Nema að ég verði orðin svo lasin að ég verði að vera heima, þá fæ ég mér bara roomservice samloku sem er geðveikt góð.
sunnudagur, maí 21, 2006
Þvílíkur lifnaður á manni...
Lífið er ansi ótrúlegt þessa dagana. Blússandi hamingjuferð alla daga. Sit hér á efstu hæð hótelsins og horfi á Central Park og NY ljósin í öllu sínu veldi. Lappirnar upp á gluggakistu, tölvan í fanginu og rassinn í þægilegum stól til að nýta útsýnið:)
Ég er þó ekki frá því að það bóli á heimþrá;)
En þrátt fyrir að vera með þessa heimþrá þá get ég ekki kvartað undan félagsskapnum, hér er ég eins og ein af kóngafólkinu og mér er vel tekið. Fórum t.d á 34th street og Broadway að versla í dag. Kíkti í Victoria´s secret, H&M og Crate & Barrel. Keypti geðveikt mikið í VS og geðveikt pils í H&M og svo keypti ég í búið í C&B. Fórum líka í búðir eins og Prada og Armani. Átti ekki mikið heima í þeirri deild, en þess má geta að flestir búðargesta í Armani voru Asíubúar. Minnir mig á að deila því með ykkur að afgreiðslufólkið í NY er eitt það smeðjulegasta og mest uppáþrengjandi sem ég hef kynnst og að á morgun ætla ég í Century 21 og á aðal búðargöturnar til að versla frá mér allt vit.
Jæja er farin að njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða. Bið að heilsa heim í heiðardalinn.
laugardagur, maí 20, 2006
Dagur 3 í New York
Við Sara erum vaknaðar hérna eldsnemma. Hún svaf upp í hjá mér, ótrúlega notalegt. Fórum bara fram að horfa á Dóru á spænsku.
Dagurinn í dag verður nýttur í verslunarleiðangur um 34th street. H&M, Victorias secret og fleiri búðir þar sem maður getur gleymt sér!
En í gær fórum við til Connecticut í grillveislu. Þvílíkan dýrindis mat fengum við. Grillað Nevada naut með góðri Bernaise sósu. Ég borða nú aldrei svoleiðis sósu en þessi var svo góð að ég gat ekki annað. Ég er líka búin að fara tvisvar í limma. Haldið að það sé stjörnulíf hérna:)
En ætla að henda mér í sturtu og borða. 34th street bíður eftir mér!
fimmtudagur, maí 18, 2006
Jæja þá er komið að þessu...
Stúlkan er að leggja í hann bráðlega. Finn ekki fyrir spenning en vitaskuld hlakka ég til. Þetta er bara svo óraunverulegt. Eitthvað plan er komið upp og við byrjum morgundaginn á því að fara í limmu út í sveit fyrir utan NY. Þar ætlum við að eyða deginum í sundlauginni og á bakkanum með kokteila (óáfenga auðvitað). Svo verður grillað að hætti Íslendinga. Þetta er í boði eins Íslendings sem býr þarna. Þetta verður ljúft líf. Gott veður fylgir víst með.
Við erum einnig búin að plana að fara í dýragarðinn sem er fyrir utan borgina einn daginn. Það verður í fyrsta skipti sem ég fer í dýragarð fyrir utan Húsdýragarðinn. Svo verður verslunardagur hjá dömunni og ég ætla líka að kíkja e-ð guide túr um Manhattan. Vonum bara að Jón Víðir standi við það að sýna mér helstu staðina.
En ég er farin. Strax farin að sakna Íslands. Hversu heimakær getur maður verið?
þriðjudagur, maí 16, 2006
Jahá...
Hvaða manneskja veit mest um þig : Berglind Mjöll
Hverju er þér stritt mest útaf : Feimni.. (ótrúlegt en satt)
Hvaða vini þina hefur þú þekkt lengst : Evu Ólöfu og Helenu
Hvaða vini þina hefur þú þekkt styðst : mmmmm... Ölmu Ýr og Magnús Orra
Hvaða vinur þinn er fyndnastur : Alma Ýr og Berglind átti eitt þræl gott kvöld hérna í den!
Hvaða vinur þinn er feimnastur : Vinir mínir teljast nú ekki til feimna fólksins!
Hvaða vinur þinn veit mest um þín vandamál: Berglind Mjöll og Þóra
Klárasti vinur þinn : Magnús Orri án efa...
Hvaða vin saknar þú mest: Birgittu Daggar
Hvern talar þú mest við á netinu : Magnús Orra
Síðasta manneskja sem þú talaðir við á netinu : Magnús Orri
Hvern talaðiru seinast við í símann : Magnús Orra
Hverjum treystiru best : Berglindi Mjöll, Þóru og Magnúsi Orra
Hvern rífstu mest við : Sigurvin bróðir..
Hver er ljúfasti vinur þinn : Magnús Orri
Besti Söngvarinn : Berglind Mjöll
Hvaða vini þínum finnst þú alltaf vera skrítin : Ég? Skrýtin? Aldrei!
Hver er háværasti vinur þinn : góð spurning.. Helena Hrund myndi ég segja. En samt er hún ekkert svo hávær.
Heima hja hvaða vini varstu seinast: Magnúsi Orra og svo Berglindi og Ölmu Ýr.
Með hvaða vini þínum ertu örugg með : Jah, öllum. Væri nú ekki mikið að hanga með fólki sem mér liði illa með!
Þekkja vinir þínir þig : Ættu að gera það.. Edda Katrín mætti taka sig á;)
Síðasti vinur sem þú fórst í búðir með : Fór seinast í búðir með Magnúsi Orra og Sigurvin.
Síðasta manneskja sem sveik þig : Þið vitið það sem eigið að vita það....
Siðasta manneksja sem hryggbraut þig : Svar að ofan
Hvaða vinur þinn olli þér vonbrigðum : Enginn hefur ollið mér það miklum vonbrigðum að ég muni það ennþá.
Manneskja sem saknar þín : Eini sem ég veit um er Magnús Orri, alltaf;)
Seinasta manneskja sem þú hugsaðir um : Magnús Orri
Seinasta manneskja sem þú týndir: Birgitta Dögg
Seinasta manneskja sem þú elskaðir: Fyrir mig að vita og þig að finna út!
Hverjir eru þínir albestu vinir: Berglind Mjöll og Magnús Orri er að ná því líka
Hver er flippaðasti vinur þinn? Edda Katrín...
Hvaða vinur þinn huggaði þig síðast þegar þú grést? Man nú ekki eftir að hafa grátið fyrir framan vin minn í þrjú ár en þá var það Birna Hjaltalín.
Seinasta manneskja sem bjargaði deginum fyrir þér : Gísli og Hanna Ragnheiður í vinnunni bjarga alltaf deginum í vinnunni með því að vera þau sjálf.
Skora á ykkur að gera þetta líka;)
so easy to say..
so many people to love in my life... Ben Harper klikkar ekki.
Það gerir veðrið í Reykjavík ekki heldur. Langaði ekki lítið í rómantískan göngutúr um Ægissíðuna í kvöld. Verst að Maggi var að vinna. Veit að hann hefði komið með mér.
Er að grúska í tölvunni. Finna tónlist á I-podinn fyrir flugið. Þarf eiginleg að gera tékklista svo að ég gleymi ekki neinu. Það væri eftir mér að gleyma snúru fyrir I-podinn og hleðslutækinu fyrir myndavélina. Má bara alls ekki klikka. Varð batterylaus fyrsta daginn í Köben fyrir jólin. Langar ekkert mikið til þess að lenda í því aftur. Er alveg hætt að spá í hvað ég ætla að gera í NY. Það ræðst bara af veðrinu, fólkinu og staðnum. Er stelpa þannig að auðvitað finnst mér mest spennandi að versla. Langar samt líka að sjá það helsta. Vona að Jón Víðir nenni að koma með mér e-ð eins og hann var búinn að segja.
Annars var helgin ósköp fjölskylduvæn. Jón Ágúst var hjá pabba sínum svo að við vorum frekar róleg. Kristinn Haukur kom til frænku sinnar á laugardaginn og við vorum í Njarðvík mest allan daginn. Kíktum á kaffihús með Þóru og sýndum henni íbúðina sem verður tilbúin í haust. Svo var grillað á Kirkjubrautinni og kíkt í heimsókn til Unnar og Árna þar sem að krakkaskarinn naut sín í veðurblíðunni á meðan fullorðna fólkið skrafaði. Svona á lífið að vera. Minnti mig á den tid í Bolungarvík.
Á mæðradaginn (sunnudag) fórum við og keyptum blóm fyrir mæður okkar og kíktum í kaffi til mömmu (heim). Einar Örn kom með okkur og við kíktum í Hátröðina eftir kaffið. Einhverneginn enduðum við í keilu þar sem að ég gerði einhverjar fellur mér til mikillar gleði. Maggi þurfti samt auðvitað að vinna en ég var í öðru sæti. Alltaf að bæta mig þrátt fyrir að vera ekki með tæknilegustu skotin í bænum. Í lok Reykjavíkurferðarinnar fórum við Einar Örn á Kentucky, brunuðum svo suður eftir í sæluna og ég, Maggi og mamma hans enduðum kvöldið í pottinum.
Klipping, pakka niður, kaupa gjaldeyrir, tékklisti, kaupa skó... ekki á morgun, ekki hinn heldur hinn verð ég í NY city á hóteli Mr. Trump. Kíki í Central Park og leyfi ykkur heima að öfunda mig og sakna mín:)
sunnudagur, maí 14, 2006
Vel ættað fólk...
Vissuð þið að það eru aðeins fjórir dagar í NY city.
Annars er þetta búin að vera frábær helgi. Núna sitjum við Einar Örn í tölvunni í hjartaherberginu á Kirkjubrautinni. Maggi var að klára bílinn minn, ánægð með það. Tók sinn tíma að koma því í verk en svo gekk það líka bara svona vel. Svo er planið að keyra til Reykjavíkur í þriðja skiptið í dag með veislugestina á Kirkjubrautinni. Ég er orðin þræl vön að keyra brautina og það á flotta bílnum hans Magga. Maggi fær bara að hafa minn:)
Fer í sumarfrí á miðvikudaginn og er þræl sátt við það. Kem svo til vinnu á þriðjudeginum eftir tvær vikur. Yndislegt. New York í öllu sínu veldi og svo tveir-þrír dagar í róleg heit. Verst að karlinn verður einhversstaðar í Svíþjóð þegar ég kem heim. En við lifum það nú af.
...
En hér er ein mynd fyrir strákana í boði Einars Arnar. Njótið vel...
föstudagur, maí 12, 2006
Svona á það að vera
Sól, logn, fólk, heitur pottur, kaffi, gamlir karlar skrafa saman... hvað er meira kósý en það kl. átta á morgnanna? Ekki margt skal ég segja ykkur. Ætla líka að skella mér með Hönnu Ragnheiði í pottinn eftir vinnu. Ætli það verði komin stórhríð þá? Vonumst amk til að geta sleikt geisla sólarinnar í einhvern tíma og fara svo heim að leggja okkur. Er í helgarfríi ef að ég tel ekki með þessa átta tíma um helgina sem fara í 10-11. Síðsta skiptið um ævina. Ekkert svona aftur.
Ég kíkti til Þóru í kaffi á meðan Maggi var á æfingu í gærkvöldi. Bestu kaffispjöllin fara fram hjá Þóru þannig að ég er þræl ánægð með að vera komin með annan fótin á Suðurnesin.
Ætla að reyna að redda nmér grilli og grilla á morgun. Ertu til í það?
fimmtudagur, maí 11, 2006
Fermingarafmæli, hellidemba og orlof
Í dag eru níu ár frá því að ég og bekkjarsystkini mín fermdumst í Hólskirkju. Til hamingju við.
Í dag kom líka ein mesta hellidemba sem ég hef lent í á Íslandi og mér sýnist þessi demba vera að breytast í haglél.
Síðast en ekki síst:Í dag er 11. maí, fyrir ykkur sem tókuð ekki eftir. Til hamingju við sem fáum orlofið okkar í dag:)
Sælt er að eiga sumarfrí
Tek mér sumarfrí í 12 daga þetta árið. Þeir fara allir nema einn í N.Y ferðina. Kannski ég geti krunkað út einn og einn dag til að lengja fríhelgarnar líka. Maggi er t.d búinn að fá tjaldvagninn hjá pabba sínum eina helgina í júní og við ætlum að skella okkur í útilegu. Þá væri fínt að fá einn aukadag yfir helgina. Ekkert varið í að fara í útilegu út á land í tvo daga.
Annars er ég hrikalega andlaus bloggari þessa dagana. Nóg að gera annað. Fórum t.d og keyptum myrkvatjöld í herbergið mitt. Kannski ég geti sofið e-ð í sumar. Ekki alveg normalt hvað það er mikil birta í herberginu mínu eftir kl. tvö á nóttunni. Er svo vöknuð fyrir allar aldir eftir fjögurra tíma svefn. Arg...
mánudagur, maí 08, 2006
N.N
Tíminn líður hratt á gervihnattaöld...
Já það má sko aldeilis segja það. Tíminn líður alltof hratt. Ég er að verða 23 ára gömul og búin að vera edrú í næstum því þrjú ár. 34 og 1/2 mánuð til að vera svona meira nákvæm. Litli bróðir minn er að verða 21 árs og stóri bróðir minn er orðinn 33 ára. Aldur segir nákvæmlega ekki neitt. Litli bróðir verður alltaf litli bróðir og stóri bróðir verður alltaf tvítugur. Mér finnst ekki svo langt síðan að ég fékk gat á höfuðið eftir að Stefán Atli reiddi mig hjálmlausa niður Höfðastíginn og finnst eins og það hafi gerst í gær að ég og Helena tjölduðum út í garði á Heiðabrúninni með Arnari Jóhanni og ég fór inn á miðnætti því ég þorði ekki að sofa hjá pöddunum. Helena er enn að minnast á það að ég hafi skilið hana eina eftir;) Svo man ég þegar að Dóri Valla bakara var að taka mig á háhest (ekki mikið eldri en sjö ára og hann átta ára) fyrir utan Holtabrún 12 og hann missti mig og ég fékk blóðnasir. Einu sinni fórum ég og Helena líka með pabba og Sigurvin út á sSand og Helena datt næstum því í RISA fossinn;) hehe, þú færir að hlæja ef að þú sæir RISA fossinn í dag Helena mín:)
En þrátt fyrir ellimerkin þá er ég bara spræk. Frí á morgun. Ohh hvað ég ætla að njóta þess. Þrífa bílinn er nr. 1 á to do listanum. Ætla líka í ljós, kíkja í Grindavík og kíkja á línuskauta ef að veður leyfir. Maggi var líka eitthvað búinn að lofa að kíkja á dekkin á bílnum mínum við tækifæri. Sjáum til hvernig það verður. Amk verður bíllinn minn orðinn hreinn á slaginu eitt á morgun. Lofa.
laugardagur, maí 06, 2006
Ósk
Ég fæ allt sem ég bið um... var ekki alveg að nenna í vinnu í veðrinu sem var fyrripartinn í dag. Óskaði þess heitt að það kæmi rigning og hitinn myndi lækka (eigingirni já)... og viti menn. Núna er rigning og fimm gráðum kaldara heldur en þegar vaktin hófst.
miðvikudagur, maí 03, 2006
15 dagar
Það hefur sýnt sig og sannað að ég er ekkert efni í hjúkku, lækni eða neitt það sem tengist því að maður sjái blóð á hverjum degi. Sem er allt í lagi því ég ætla mér hvort eð er ekkert inn í heilbrigðisgeirann. Fór í morgun og tók þátt í rannsókn. Það fylgdi því blóðtaka í RISA glas og svei mér þá, kom sjálfri mér á óvart með því að horfa á handlegginn á mér þegar hún stakk RISA nálinni inn og blóðið gutlaði ofan í RISA glasið. Duglega stelpan ég. Var ekki eins heppin og Sigurvin og mamma, þau fengu TVÆR nálar í sig.
Núna er að koma í ljós að ég þarf að fá nýtt vegabréf. Eins gott að hafa það á hreinu svo að maður komist svo með til NY. Leiðinlegt að var stoppuð á vellinum; því miður, þú ert ekki með fullnægjandi vegabréf! Þetta henti eina stelpu sem ég veit um og hún fékk sko alls ekki neina undanþágu og þurfti að bíta í það súra epli að vera heima á meðan fjölskyldan fór í verslunarferð til NY.
Lagaði tenglana mína, e-ð farnir að ryðga sýndist mér!
mánudagur, maí 01, 2006
in your mind
Þræl fín helgi yfir staðin. Löng helgi. Byrjaði helgina á því að fara í Kringluna með Magga og Sigurvin og ætlaði sko að versla. E-ð gekk það nú lítið og ég keypti bara nauðsynjar Sigurvin sá algjörlega um eyðsluna enda keypti hann sér Diesel buxur, Pumaskó og bol, duglegur að versla sér föt til að vera í þegar hann fór svo til London á laugardaginn (er á leiðinni heim í þessum skrifuðu orðum) Gerðist líka svo merkileg að horfa á tvo tíma af King Kong á föstudagskvöldið og telst það stór afrek fyrir mig að tolla fyrir framan imbann í tvo tíma samfleytt án þess að taka pásu. Kláruðum svo myndina á laugardagskvöldið.
Úff.. gerði helling um helgina. Fór t.d í staffpartý á laugardagskvöldið eftir að hafa passað í sex tíma í Tjaldanesinu. Fékk gjafabréf á Fridays sem kemur að góðum notum og svo kíktum við til Keflavíkur og sóttum Berglindi Mjöll sem fór á e-ð Splash partý. Sunnudeginum eyddi ég hjá Berglindi á meðan Maggi dyttaði að íbúðinni hjá henni. Þræl ánægð með karlinn (Berglind sko) og ég líka, auðvitað:) Svo var haldið í matarboð í Grindavíkinni til að fagna 31 árs afmælinu hjá Kathrine. Fengum hinar glæsilegustu veitingar og ég smakkaði t.d hreindýrakjöt í fyrsta skipti. Það var þrælgott en sló samt ekki út kökurnar. Hún er stórgóður kokkur og bakari hún mágkona mín, ég verð að fara að æfa mig greinilega.
Deginum í dag var svo eytt fyrir framan imbann og svo skellti ég mér í ljós. Nú á að worka tanið fyrir NY city. Get ekki látið sjá mig svona skíthvíta í landi tækifæranna. Aldrei að vita hvern maður hittir á götum stórborgarinnar. Spenningurinn eykst með hverjum deginum. Ég er líka að REYNA aðpassa peningana. Nauðsynlegt að bruðlast aðeins þegar maður fer til USA:)
Hvernig fílið þið Katie Melua?
fimmtudagur, apríl 27, 2006
Frí
Vildi endilega deila því með ykkur að ég er í fríi frá kl. 15 á morgun þangað til kl. 15 á þriðjudag. Ljúft líf. Ætla líka að njóta þess. Kíkja í Kringluna, fara í afmæliskaffi, passa og aldrei að vita nema að ég þrífi bílinn minn á mánudaginn.
Var svo að hlusta á Bylgjuna. Ekki frásögu færandi nema fyrir það að Kolla er komin með annað lag í spilun þar. Það er þrusu flott og ég er mjög ánægð með stelpuna. Ef að þið viljið heyra lögin hennar þá er linkur hérna til hliðar á myspace síðuna hennar! Líka linkur á Raufarhafnarbandið Wulfgang sem er einnig að gera góða hluti sem og stór hljómsveitin Reykjavík! Öddi á auðvitað sinn link líka þó að það auðvitað algjör óþarfi að kynna hann!
þriðjudagur, apríl 25, 2006
mánudagur, apríl 24, 2006
Krónískur pirringur
Þá er þessi helgi að baki og ný vika tekur við í fyrramálið, eða hvað finnst þér? Hefst vikan á sunnudegi eða mánudegi hjá þér? Vika í útborgun og ég á inni 55 yfirvinnutíma sem að þýðir gott og fallegt launaumslag.

Fór á Ice Age 2 í Smárabíó áðan. Elskulegasta mynd sem ég hef séð í langan tíma. Fórum svo til Berglindar í video en tolldum ekki lengi við. Þreytt og svo var myndin ekki alveg að gera sig heldur. Grimms bræður amk ekki góðir í þreytunni. Þreytan er tilkomin vegna Keflavíkurferðarinnar með Berglindi í gær. Kíktum í heimsókn til hennar Brynhildar. Þar var líf og fjör. Gísli Steinn heillaði liðið og við telpurnar spjölluðum fram á nótt. Ætlum að vera duglegri að heimsækja kelluna. Hún býr líka í þessari flottu íbúð með drauma sófasettinu mínu og drauma baðinnréttingunni líka.
föstudagur, apríl 21, 2006
Fékk ekki malt
En ég fékk umbeðið kaffi í staðinn. Takk fyrir það Helena!
Enn og aftur komin helgi og ég enn og aftur ekki í helgarfríi. Núna er ég búin að lofa sjálfri mér því að hætta í 10-11 um leið og færi gefst. Á morgunvaktirnar um helgina og það er svo sem ágætt. Fínasta lið sem á vakt með mér.
Ég ætla nú að gera e-ð annað en að vinna um helgina. T.d kíkja í bíó með Magga á Ice Age og svo ætla ég að reyna að heimsækja Mumbi og Ingvar. Löngu kominn tími á það.
Líka kominn tími á að líta á Aldrei fór ég suður á netinu. Finnið það á siminn.is/aldreiforegsuður. Mæli með Guano stelpa, Sign, Hermigervill, Jan Mayen, Jet Black Joe (hafa verið betri þó).. jájá og einhverju fleiru! Farin-


